31.1.2009 | 10:05
Stopp stopp.
Nú verða framsóknarmenn að standa við stóru orðin og verja nýja stjórn Samfylkingar og VG falli fram á vor. Ef þeir klúðra því er algjörlega klárt að við munum muna hvernig þeir hafa dregið þessar stjórnarmyndunarviðræður á asnaeyrunum síðustu daga. Sú yfirlýsing þeirra að verja þessa flokka falli hefur væntanlega verið fljótfærnisleg og illa ígrunduð og nú er framsóknarflokkurinn komin í sjálfheldu sem hann nær sér ekki útúr. Betra hefði verið fyrir framsókn að spara yfirlýsingarnar og vinna heimavinnuna sína áður en þeir steyptu þjóðfélaginu útí stjórnarkreppu á örlagatímum. Ekki var á bætandi.
Ósætti um aðgerðirnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er athyglisvert hve sterk tengsl virðat vera við Finn Ingólfsson og S-hópinn í forystu Framsóknarflokksins. Finnur Ingólfsson = spilling! Það er það sem er í gangi...úlfurinn er í sauðagæru!
Vilborg Traustadóttir, 31.1.2009 kl. 13:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.