Færsluflokkur: Bloggar

Helvítis fokking fokk.

Ný stjórnarskrá sem felur í sér aðskilnað löggjafar og dómsvalds, sem felur í sér að stjórnmálamenn sitji ekki lengur en 2 til 3 kjörtímabil, sem felur í sér að ráðherrar komi ekki úr röðum þingmanna, sem felur í sér að lýðræðið snúist um hagsmuni almennings en ekki gjörspiltra stjórnmálamanna sem eru á mála hjá auðjöfrum og áhættufýklum, er meðal þess sem við stöndum frammi fyrir að þurfa að gera. Ísland verður að endurreisa frá grunni og við verðum að henda öllum þeim gömlu klisjum sem við höfum verið heilaþvegin með síðustu árin og áratugina út í hafsauga. Við þurfum að taka til okkar ráða og byggja þetta land upp með manngildi og réttlæti að leiðarljósi.  En fyrst verður að hreinsa til. Helvítis fokking fokk.

Íslandi allt.

Við sem hér höfum alið aldur okkar í áratugi og komið börnum okkar á legg er ekki sama um framtíð lands og þjóðar. Það er sorglegra en tárum taki að verða vitni að þvílíkri brotlendingu þjóðfélags sem raun ber vitni. Það er enn verra að það fólk sem við bundum vonir við að gætu átt hér vænlega framtíð skuli svipt þeirri von svo rækilega. Ég veit að foreldrar mínir væntu þess þegar þau ólu mig upp ásamt 5 systkinum að landið væri vænlegt til búsetu.. Þau lögðu hart að sér við uppeldi og framfærslu margra barna og trúðu á landið og auðlyndir þess. Svo hygg ég að hafi verið um fleiri. Það sem dunið hefur yfir þetta þjóðfélag er með þvílíkum eindæmum að fá ef nokkur fordæmi eru slíks. En eftir því sem best verður séð þá átti engin sök á því hvernig fór. Ekki má leita sökudólga, ekki horfa í baksýnisspegilinn, ekki skipta um hest í miðri á, ekki skipta um stýrimann í miðjum brimgarði, ekki yfirgefa brennandi hús  áður en slökkvistarfinu lýkur. Þessar klisjur hafa dunið yfir okkaur frá hruninu og gera enn. Nú er mál að hætta þessu rugli og tala við þjóðina á mannamáli, án svona fáránlegra samlíkinga. Ég skal orða þetta fyrir þessa stjórnmálamenn sem hafa verið með þetta bull og ekki fundið réttu orðin. Það hljómar svona.  Landið fór á hausinn og þeir sem áttu að standa á verði brugðust. Þeir sem áttu fjármagnið stálu því.. Ekki flókið og hvert barn frá 3ja ára aldri getur sagt þetta. En ekki stjórnvöld.  Þau virðast ekki kunna íslensku.

Í fjötra fátæktar.

Þeir sem ég hef rætt við í haust og vetur hafa margir ekki viljað horfast í augu við þá stöðu sem þjóðfélagið er komið í. Það rennur þó upp fyrir æ fleirum hvert stefnt er. Hækkanir á læknisþjónustu og samdráttur á því svið blasa nú við. Skattahækanir munu skella á okkur í mörgum myndum og eru þegar farnar að hafa áhrif. Raforkuverð hækkar nú um ármót vegna hækkanna á dreifingarkostnaði. Og þetta er aðeins byrjunin. Með vaxandi atvinnuleysi fjölgar mjög þeim sem ekki geta staðið undir rekstri heimilisins vegna lánaokurvaxta í formi brjálæðislegrar verðtryggingar sem reiknaðir eru af einhverjum hjarðdýrum sem þora ekki að segja hversu fáránlega útreikninga er stuðst við þegar vísitalan er reiknuð. Sá útreikningur þyrfti að lýta dagsins ljós og það verður að  fá einhverja sæmilega vitiborna stærðfræðinga og hagfræðinga til að fara yfir þær aðferðir sem viðhafðar eru. Við getum þetta ekki lengur. En því miður versnar þetta enn og á eftir að versna mikið á árinu 2009 Horfumst bara í augu við það. við erum að lenda í fjötrum fátæktar. Þökkum nýfrjálshyggjunni það.

Plan B er að forða sér.

mbl.is Vill láta fresta hækkun á raforkuverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bræður munu berjast

Bræður munu berjast og almenningur sogast inni í deilur og dægurþras vegna þess að stjórnvöld og stofnanir Íslands brugðust. Þannig er nú komið fyrir landinu okkar. Gjaldþrota land sem rúið er trausti og atað auri alþjóðasamfélagsinns. Við hýrumst hér norður í hafi á þessari fallegu eyju, útmáluð hriðjuverkaþjóð sem hefur á að skipa stjórnsýslu sem ekki á sinn líka meðal "siðaðra þjóða". Sorglegt að ríkistjórn íslands skuli haldast það uppi að athyglin sé dregin frá óhæfuverkum hennar að einhverjum "Ótýndum glæpalýð" eins og Ari Edvals sagði í gær um fólkið sem mótmælti við Hótel Borg á Gamlársdag. Það er nefnilega þannig sem ógnarstjórnir vinna.

Þær reyna að etja lýðnum saman og stuðla að uppþotum og skærum meðan þær fara sínu fram í skjóli myrkurs. Það er verið að moka yfir lögbrot bankamanna fyrir framan nefið á okkur. Árni Matt segir að lögbrot sitt sé gott til að "læra af". ( þegar hann skipaði Þorstein Davíðssonsem dómara) Okkur er sagt að ekki eigi að leita að sökudólgum. Gott og vel. Látum það þá ganga yfir alla landsmenn. Alveg sama hvaða lögbrot eru framin. Þorvaldur Gylfason hagfræðingur sem margir taka mark á sagði í viðtali á gamlársdag ; "varlega orðað þá er verið að eyða gögnum í bönkunum". Hann sagði einnig að í öllum venjulegum réttarríkjum hefðu bankarnir verið "girtir af" og engin af fyrverandi stjórnendu þeirra fengið að koma nálægt þeim. Að sjálfsögðu á fólkið sem mótmælir að gæta hófs og forðast það að slys hljótist af. Það er afleitt þegar slíkt gerist.

Ég er búin að mæta nokkrum sinnum á Austurvöll til mótmæla og hafa þau mótmæli farið mjög friðsamlega fram að mínu mati. Það eru þó mjög margir sem hafa sat mér að þeir mæti ekki á Austurvöll vegna skrílsláta og skemdarverka sem þar séu unnin. Ég verð að segja að ef við tökum þá afstöðu að mæta ekki vegna "skrílsláta" örfárra, þá einfaldlega erum við að samþykkja aðgerðarleysi stjórnvalda á þeim forsendum að við tökum ekki þátt í ofbeldi. Ég hef aldrei tekið þátt í ofbeldi í þau skipti sem ég hef mætt á mótmæli. (að mínu mati)

           Ég stóð eitt sinn í garðinum bak við Alþingishúsið þar sem handtaka átti mann sem mótmælti ásamt mér og þúsundum annara framferði stjórnvalda í okkar garð. Tveir lögreglumenn voru að draga hann burtu. Ég gekk til þeirra tók í hönd mannsinns, sagði við lögreglumennina "svona gerum við ekki" og dró mannin með mér af stað út úr garðinum. Lögreglumennirnir héldu honum og drógust af stað með, en sleptu honum síðan og maðurinn gekk burt. Hvernig mér datt þetta í hug veit ég ekki. Ég bara gerði þetta. Hvernig ég hafði afl í að gera þetta veit ég ekki. Þeir voru mikklu stærri og þyngri en ég. Ég tel mig ekki hafa beitt ofbeldi þarna en kanski er það ekki rétt. Eftilvill var það ofbeldi af mér að gera þetta? Við venjulegar aðstæður t.d. á 17. júní hef ég ekki brugðist svona við.

           Lögreglan hefur  handtekið fólk að mér ásjáandi og mér hefur ekki dottið í hug að skipta már af því. Þannig voru viðbrögð mín á þessari stundu og á þessum stað við þessar aðstæður  mjög óvenjuleg. Óvenjulegar aðstæður kalla á óvenjuleg viðbrögð. Við búum í landi þar sem aðstæður eru vægast sagt harla óvenjulegar. Raunar algjörleg óásættanlegar.  Án þess að ég sé að gera lítið úr því að það urðu meiðsl í mótmælunum á Gamlársdag, þá mun það ekki koma í veg fyrir að ég haldi áfram að mæta og verja rétt minn til að láta skoðanir mínar í ljós.

Mér finns dapurlegt að sjá lögregluna beita táragsi trekk í trekk  og veit raunar að þeim líður ekki vel með að þurfa að beita landa sína ofbeldi. Þetta er þeirra vinna og þeir sinna henni. Það er sárast að svona hlutir skuli þurfa að gerast á okkar fallega "friðsama" landi. Við erum flest mjög friðelskandi fólk og með sterka réttlætiskend. Látum ekki sundra okkur. Hvorki með öfgafullum fréttaflutningi af mótmælaaðgerðum  né þögninni sem ríkir yfir pappírstæturunum í bönkunum. Höldum ótrauð áfram í átt að réttlátara þjóðfélagi og smeinumst um það verkefni. Það er svo auðvelt fyrir okkur á þessum tætingslegu tímum að koma ekki áuga á aðalatriðin vegna uppblásinna frétta af riskingum og skrámum sem hlutust af slagsmálum tæknimanna Stöðvar 2 við fólkið sem mótmælti á Austurvelli 31 des árið 2008 Eg endurtek að við óvenjulegar aðstæður er þörf óvenjulegra aðgerða. Í fyrsta sinn í áratugi mótmæla islendingar. Komið með látum sjá okkur en meiðum ekki lögreglu við skyldustörf  af ásetningi.. Svo hef ég nú enga samúð með þessu myndavélarusli þeirra á Bugsmiðlinum Stöð 2. Skítsama um dauða hluti. Þeir sem eyðilögðu þetta dót verða eflaust að bæta það. En uppúr stendur að þetta var besta Kriddsíld sem ég hef séð.

Þá er ljóst að nú hafa þeir sem hæst gjamma um skríl og skemdarverk á verðmætum annara tekið það sér til fyrirmyndar og dunda sér nú  í skjóli myrkurs við  að brjóta og skemma eigur eins af þeim sem staðið hafa framarlega í hópi mótmælenda.........................  eða hvað.

Ég mæti með grímu næst. Það er öruggara.

mbl.is Ráðist gegn Nornabúðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bræður munu berjast.

Nýtt ár

Brátt lýkur þessu sviptingasama ári og í hönd fer ár óvissu og átaka. Ég geri ráð fyfir að brátt fari að renna upp fyrir fólki hvernig komið er. Það hefur verið viss afneitun í gangi frá hruninu í haust en brátt verður ekki lengur hægt að loka augunum fyrir stöðunni. Við munum ekki á nýju ári sætta okkur við það hvernig haldið er á málum í þjóðfélaginu og ég tel mjög líklegt að almenningur neyðist til að taka málin í sínar hendur ef svo heldur sem horfir. Stjórnvöld ætla að reyna að komast í gegnum þessar þrengingar án þess að nokkurstaðar sé krafist ábyrgðar  eða að menn svari til saka fyrir það hvernig komið er. Þar munum við hinn almenni borgari þessa lands segja stopp hingað og ekki lengra. Það er komið að uppgjörinu og ekki lengur hægt að bíða með aðgerðir. Tökum höndum saman skundum á Þingvöll og stofnum nýtt alþingi, setjum ný lög og endurskipuleggjum þjóðfélagið. Við getum alveg gleymt því að einhverjir þeirra kjörnu fulltrúa sem sitja á Alþingi hafi manndóm í sér til framkvæmda. Gerum þetta bara sjálf.

Á Jóladag.

Hér á Kristnibrautinni hafa jólin verið hin bestu með góðmeti í öll mál og sannkalaða jólastemmingu í bænum. Nú er jóladagur að kvöldi kominn og fjölskyldan á leið í háttinn. Við sendu hjartans kveðjur til allar sem kíkja hér inn. Lifið heil.

Jól

Ég óska öllum sem þetta lesa Gleðilegra Jóla árs og friðar. Megi komandi ár verða okkur uppspretta frjórra og skapandi tækifæra sem við getum nýtt til að endurskapa Ísland og gera þær grundvallarbreytingar á stjórnsýslunni sem óhjákvæmilegar eru til að við öðlumst á ný trú á framtíð okkar hér í útnorðri.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband