28.1.2009 | 13:47
Lifi Lýðræðið
Við íslendingar eigum engan annan kost en að einhenda okkur í lýðveldisbyltingu svo um munar. Það er okkar eina von að byggja þetta land upp frá grunni og setja okkur alveg ný viðmið og umgjörð um stjórnskipan landsinns. Lifi Lýðveldisbyltingin.
Uppfært í Ísland 2.0 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já... sé til eftir ár, hvernig þetta gefst.
Ásgrímur Hartmannsson, 28.1.2009 kl. 14:35
Þar sem vírus leggst gjarnan á reglugerðarmennina þurfum við einhver ráð til að skera niður í röðum ráðamanna sem eru sýktir af skinsemisskorti, skapbrestum eða sérhagsmunagæslu.
Fulltrúa Lýðræði: Lýðurinn ræður til hvaða Fulltrúa hann afsalar sér völdum á nokkurra ára fresti. (Vírusinn fær að grassera hjá ráðamönnum)
Handhafa Lýðræði: Lýðurinn ræður hvaða Handhafa hann afhendir völd sín, án þess að afsala réttinum til að taka þau aftur. (Borgararnir hafa ráð til að skera út sýkta ráðamenn)
Beint Lýðræði: Lýðurinn ræður hvenær skuli fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um lagafrumvörp, og borgararnir geta lagt fram frumvörp til stjórnarskrárbreytinga og komið þannig Beint að ákvörðunartöku í ríkinu. (Borgararnir geta komið að forrituninni). - Svisslendingar hafa þennan stjórnarskábundna rétt. -
Ísland 2.0 getur orðið fyrsta Beina Handhafa Lýðræði heims.
Taktu þátt í að koma okkur þangað: www.lydveldisbyltingin.is
Meira um Beint Handhafa Lýðræði hér: Kjósum Beint Handhafa Lýðræði
Jón Þór Ólafsson, 28.1.2009 kl. 16:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.